þriðjudagur, 7. apríl 2015

Páskar og afmæli 2015

Páskarnir eru búnir að vera ótrúlega góðir hjá okkur í ár. Ég var að vinna á föstudaginn langa og páskadag, en var þó bara í morgunmatnum svo ég var bara að vinna til hádegis.
Sæja Sjöfn þurfti því miður að fá gubbupest á föstudagskvöldið. Sem betur fer kom síðasta gusan um tólf leitið og hún var farin að sofa fyrir eitt. Ég var ennþá svo skíthrædd um að hún myndi gubba á meðan hún væri sofandi að ég vakti yfir henni til að verða þrjú. En þá vakti ég líka Tomma og hann vakti í sirka hálftíma í viðbót yfir henni. Morguninn eftir var hún svo orðin hress aftur, svo við skelltum okkur í afmælisveislu í Hveragerði. Um kvöldið skelltum við Tommi okkur svo aðeins niðrá Stracta og fengum okkur bjór og höfðum það smá kósí. Á meðan var amman heima að æfa sig fyrir næstkomandi laugardag, en þá erum við Tommi að fara á Wacken Metal Battle í Hörpu og verðum örugglega í bænum yfir nótt.

Páskadagurinn var svo eins rólegur og þeir gerast. Eftir að ég kom heim úr vinnunni byrjaði ég á því að leggja mig, svo var páskamaturinn um tvö leitið og eftir það var bara legið uppí sófa og hámað í sig súkkulaði, svona eiga páskarnir líka að vera. Og, ég fékk tvo málshætti í egginu mínu ^^

Dagurinn í gær var svo alveg frábær. Við fórum til Reykjavíkur, kíktum í smá heimsókn til palla afa og svo til Magnýar og Steinunnar. Magný kom svo með okkur í Kolaportið, en þar keypti ég mér ný gleraugu og svo keypti Tommi fyrir mig seinni tvær bækurnar í Eragon seríunni, en ég átti hinar fyrir. Bækurnar kostuðu saman 2500 kr. og þær eru enn í plastinu! Á meðan við Magný og Sæja settumst niður til að fá okkur smá köku, en Sæja fékk smá rjóma og var gríðarlega ánægð með það, náði Tommi að kaupa sér fimm DVD-myndir og einn bol :O Ég þakka bara fyrir að það sé mest allt ódýrt í portinu c;  
Eftir Kolaportið skelltum við okkur síðan á Metro og svo fór Sæja Sjöfn í fermingarveislu með ömmu sinni en við Tommi skelltum okkur í Hagkaup þar sem ég fékk mér æðislegt burstasett og kíktum svo í bíó. 
Við ákváðum að skella okkur á Kingsman: The Secret Service, og á miðanum sem ég fékk stóð SALUR 5. Ég leit bara rétt yfir þetta og setti þá svo í veskið. Við förum svo inn í sal fimm og finnum okkur sæti og smjöttum á poppinu. Svo byrjar myndin..... "Sean Penn" stendur á skjánum og ég hugsa með mér "Bíddu.. var hann í þessari mynd?" o.O Svo koma alls konar stríðsmyndir á tjaldið og svo "Gunman" :O Við drífum okkur út úr salnum og ég ríf upp miðana, en á þeim stendur auðvitað "SALUR 5...Gunman" Það er víst svo rosalega mikið að gera í Smárabíó að það þarf ekkert að vera að afgreiðslufólk gefi manni miða á rétta mynd x) Sem betur fer var Kingsman í salnum við hliðiná og myndin rétt að byrja þegar við komum inn. Myndin sjálf var algjör snilld, og ég mæli eindregið með henni. En djöfull var ég orðin pirruð á stelpunni sem sat fyrir aftan mig og sparkaði og sparkaði í sætið mitt. Þegar ég sneri mér svo loksins við, pikkaði í hana og bað  hana um að hætta að sparka í sætið segir hún "Ég er ekkert að sparka!" Ætli hún hafi ekki verið svona 12-14 ára, og alveg að farast úr gelgju -.-"
Sæja Sjöfn var svo orðin frekar lasin þegar við vorum á leiðinni heim þannig við komum við í apóteki og fengum fyrir hana stíla. Hún er ennþá svoldið lasin, með mikið nefrennsli, hóstar og hnerrar og er líka með mjög mikið kvef í augunum, auk þess sem hún er alltaf þreytt. En við fengum tíma hjá lækni á morgun svo ég vona bara að það fari allt saman vel. 

Engin ummæli:

Skrifa ummæli