Aldrei virðist ég geta bara haldið mig á einum stað. Enda var Hella ekki beint besti staðurinn til að búa á, að mínu mati. Akureyri á allavega betur við mig.
Sæja er komin til dagmömmu og ég er komin með fasta vinnu hjá Hreint. Okkur líður bara mjög vel hérna fyrir norðan, en að sjálfsögðu er þetta bara tímabundið, eins og allir hinir staðirnir sem ég hef búið á. Planið er semsagt að fara suður til Reykjavíkur næsta haust og fara aftur í HÍ, en að þessu sinni mun það vera sálfræðin sem ég ætla að taka mér fyrir hendur, þjóðfræðin var ekki alveg minn tebolli.
En að einhverju allt öðru..
Sum ykkar hafið kannski tekið eftir því að ég heiti ekki það sama á facebookinu og ég gerði. Það er einfaldlega vegna þess að ég er að fara að breyta nafninu mínu. "Af hverju?" you may ask... nú, vegna þess að mig langar til þess. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það að heita Dagmar, af því að mér finnst það ekki flott, mér finnst það ekki fara mér, og ég vil ekki bera það nafn lengur.
Og það getur vel verið að einhverjum finnist það fara mér rosalega vel, eða vera rosalega flott, og að ég ætti alls ekki að vera að breyta því.
En það eru ykkar skoðanir, og þið megið endilega bara halda þeim fyrir ykkur. Mér einfaldlega gæti ekki verið meira sama hvað ykkur finnst um það að ég sé að breyta nanfinu mínu.
Ég er að fara að gera það, og ég myndi meta það mikils ef þið gætuð reynt eftir bestu getu að kalla mig mínu nýja nafni, í staðin fyrir það að koma með einhver skítköst í mig út af þessu.
Ég er ekki að reyna að búa til einhver leiðindi með þessu, bara svo að það sé alveg á hreinu, og ég er heldur ekki að vonast eftir því að með nýju nafni komi nýr persónuleiki.
Ekki halda að ég horfi á það þannig. Ég veit það alveg að annað umhverfi, annað útlit, annar vinnustaðir, aðrir vinir, breyta því ekki hver maður er. Svo af hverju ætti nafnabreyting að gera það?
Ég er ennþá sama manneskjan, bara með annað nafn...
Lillý Ásrún.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli