Sæja Sjöfn varð svo sex mánaða núna 12. mars, og það sem hún hefur blómstrað! Hún er farin að borða hafragraut á morgnanna og vatnsglas, og fær smá lýsi með því (sem henni finnst líka svona gríðarlega gott), fær síðan smá jógúrt í hádeginu og fær aðeins að leggjast á brjóstið áður en hún fer út að lúlla. Svo er hún alltaf jafn spennt þegar hún fær stappaða kartöflu með smjöri í kvöldmatinn! Hún vaknar ennþá á nóttunni til að fá smá að súpa, en ég er byrjuð að reyna að gefa henni bara smá vatnssopa og svæfa hana svo aftur. Finnst alveg vera kominn tími til að hún sofi bara á nóttunni, held við þurfum öll á því að halda.
Vinnan á Stracta Hóteli er alveg frábær. Á laugardaginn var ég að vinna í tíu tíma, frá sjö um morguninn til fimm, og mér fannst það bara allt í lagi. Þegar ég kom loksins heim fannst mér ekkert eins og ég hafði verið að vinna í heila tíu tíma. Tommi og Sæja þurftu reyndar að koma um þrjú leitið svo ég gæti gefið henni aðeins að drekka. Ekki þó af því að hún var búin að vera að kvarta, heldur var það ég sem þurfti aðeins að tappa af, svona áður en brjóstin á mér myndu springa af mjólkurframleiðslu! Hingað til hef ég bara verið að vinna eitt til tvö kvöld í viku og svo á morgnanna um helgar, en ég vona að ég geti fengið aðeins fleiri vaktir í apríl. Bæði svo að Sæja geti vanist því að ég er ekki alltaf heima, og svo er þetta líka ágætlega vel borguð og skemmtileg vinna. Og við þurfum alveg á peningunum að halda, sérstaklega ef við ætlum einhverntíman að geta fengið okkar eigin íbúð og jafnvel gift okkur einvhern tíman, það eru náttúrulega mjög miklir peningar sem fara í svona stórt partý.
Ég ákvað um daginn að reikna út BMI stuðulinn minn, bara svona til að tékka á því hvort ég sé ekki alveg líkamlega "heilbrigð". En nei nei, samkvæmt þessum blessaða stuðli er ég í hópi offitusjúklinga.
Ok, ég veit alveg að ég er með helling af óþarfa fitu og einhverja auka húð á bumbunni, svo er ég líka að taka til í mataræðinu og svona svo ég losni nú við þessa auka fitu, en come on, offitusjúklingur! Þetta sýnir bara hvað þessi helvítis stuðull er glataður!
Ég er annars farin að hallast að því að ég þurfi að fara að panta mér tíma hjá lækni og fá jafnvel önnur lyf en þessi sem ég er að taka. Þessi þunglyndis-/kvíðalyf sem ég er á gera voðalega lítið fyrir mig, annað en það að ég fæ bullandi niðurgang,, ekki gaman!
Ég er búin að vera að fylgjast mjög mikið með pólitík upp á síðkastið, sérstaklega hvað varðar múslima- og evrópusambands mál. Og ég verð bara að segja eins og er, að mér er nákvæmlega sama hvort að múslimar byggji sér mosku hérlendis eða ekki, en ég skil reyndar ekki alveg af hverju Reykjavíkurborg ætti að GEFA þeim sérstakt svæði til þess. Svo hef ég engann sérstakan áhuga á því að ganga í Evrópusambandið, en það er lágkúrulegt að draga umsóknina til baka án þess að þetta fari í þjóðaratkvæðisgreiðslu. Þjóðin á að fá að ráða svona málum, ekki einhverjir nokkrir kallar inná Alþingi. Þetta á að heita lýðræði, þar sem lýðurinn ræður, ekki einhverjir 2-3 dúddar. Og með það sagt hefði þetta mál átt að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu, sama þó ég sé sátt með útkomuna eða ekki.

Jæja, núna var skvísan að vakna eftir útilúrinn sinn. Þá er kominn tími fyrir smá mjólkurglas og leiktíma. Bless í bili.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli