Það er allt búið að ganga rosalega vel hjá litlu familíunni upp á síðkastið. Við fórum með Særúnu í skoðun og fékk hún tvær sprautur og var skoðuð af barnalækni. Barnalæknirinn pantaði svo tíma í hjartaómskoðun, því henni fannst hún hafa heyrt einhver aukahljóð þegar hún hlustaði á hjartsláttinn hjá henni. Það þurfti samt ekki að þýða að það væri eitthvað að. En við fengum þó tíma hjá lækni í bænum nokkrum dögum seinna. Við fórum á Læknastöð Vesturbæjar og læknirinn þar skoðaði hana vel og sagði svo að hún væri bara stálhraust. Það komu að vísu einhver aukahljóð þegar hann hlustaði á hjartsláttinn hjá henni, en líkt og barnalæknirinn, sagði hann að það væri allt í lægi og við þurftum ekkert að fara að missa svefn yfir þessu.
Eftir læknatímann kíktum við aðeins á Sigga og Nooru. Ég skutlaði Tomma og Sigga síðan á Kringlukránna og við Særún kíktum til Hörpu. Hún býr nú við hliðina á leikskólanum sem ég vann á í fyrra, svo ég ákvað að labba þar aðeins í gegn þegar við vorum að fara.
Nokkrum dögum síðan fórum við í jólaboð hjá Bjössa frænda. Reyndar voru þetta "Litlu Jól Hennar Hátignar" því María frænka var á landinu þá og var búin að ákveða að vera úti í Dubai um jólin. Þess vegna var um að gera að hafa smá jólaboð á meðan hún væri hér.
Allir voru gríðarlega duglegir að skiptast á að halda á Særúnu. Það var eiginlega bara rifist um það að fá að vera með hana! María gaf henni að borða og sýndi henni myndbönd á símanum sínum sem hún hafði tekið upp á djamminu kvöldið áður. Það var víst mikið sungið og haft mikið gaman, og Særúnu fannst bara gaman að sjá allt stuðið.
Ég, Tommi, María og Kjartan sátum og spjölluðum þar til klukkan var að verða tvö. Særún var náttúrulega sofnuð og laggði sig bara í bílstólnum þangað til við fórum heim til langömmu og langafa á Grásteini.
Ég talaði við pabba um daginn og það er búið að fá flugmiða fyrir okkur fjölskylduna út til Noregs þann 19. janúr 2015. Pabbi og Sössa eru nefnilega að fara að gifta sig 23. janúar og að sjálfsögðu þurfum við að mæta þangað. Tommi verður úti í eina viku, en við Sæja Sjöfn ætlum að fá að vera í aðeins lengra fríi.
Við fórum í skötuveislu á Grásteini um síðustu helgi. Í fyrra var fyrsta skiptið sem ég prófaði skötu, hún hún var nú bara allt í lagi. Ég komst í gegnum hana í þetta skiptið með smá hjálp frá herra jólaöl og fröken appelsín. Við borðuðum síðan aftur skötu á Þorláksmessu og mér fannst mun erfiðara að komast í gegnum einn disk af því. Enda fékk ég smá jólatuborg til að skola því niður.
Það vilja margir meina að skatan komi í veg fyri það að maður fái kvef. En djö..andsk..helv..bölv.. kjaftæði sem það er! Áður en ég fór í skötuveisluna var ég ekkert kvefuð, enginn hósti og ekkert nefrennsli. En eftir skötuveisluna hef ég orðið veikari og veikar með hverjum deginum sem líður. Ég tók nú þátt í jólagleðinni í gær, þó ég hefði helst viljað vera bara sofandi uppí rúmi allt kvöldið og sofa þessi veikindi úr mér. En það þurfti nú einhver að opna pakkana hennar Sæju Sjafnar og ekki ætlaði ég nú að leifa Tomma að opna alla pakkana. Ég er þó búin að drekka helling gaf soðnu vatni (með sykri), taka hóstastillandi töflur og sprauta einhverju nefspreyi upp í nasirnar á mér, og ég er nú orðin aðeins skárri í dag heldur en í gær. Enda ætla ég að halda áfram í soðna vatninu í allan dag!
Að lokum viljum við fjölskyldan óska öllum gleðilegra jóla og þökkum allar samverustundirnar á árinu sem er að líða. Hlökkum mikið til að fara að búa til nýjar, frábærar minningar fyrir árið sem er að ganga í garð.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli