Þegar ég
var lítil fór ég oft í heimsókn til móðurafa míns, og gisti hjá honum oftar en
einu sinni. Hann hefur alltaf verið mjög góður og elskulegur við okkur krakkana
og viljað allt fyrir okkur gera. En hann er þó ekki allur þar sem hann er
séður.
Fyrir svolitlu síðan vorum við fjölskyldan að horfa á sjónvarpsþáttinn Málið á Skjá Einum. Þátturinn þetta tiltekna kvöld fjallaði um barnaníðinga. Nokkrum dögum síðar ákvað móðir mín að tala svoldið alvarlega við mig og systur mína. Við fórum inn í herbergið mitt þar sem mamma og stjúp faðir minn sögðu okkur lítt skemmtilega sögu.
Þegar móðir mín var einhvers staðar á aldrinum tíu til ellefu ára var brotið á henni kynferðislega. Ekki nóg með það, heldur var afbrotamaðurinn faðir hennar. Ég veit ekki hversu oft það var, eða í hversu langan tíma það stóð yfir, en þó það hefði bara verið einu sinni, er það alveg nógu slæmt. Og móðir mín var víst ekki sú eina sem hann braut á. Hann hafði líka brotið kynferðislega á systur móður minnar, og allavega tveimur af sínum eigin systrum.
Annað áreitamál kom upp innan ættarinnar um svipað leiti og móðir mín sagði frá ölllu saman. Fyrverandi maður einnar frænku minnar var kærður af, að ég held, sex eða sjö konum á Þingeyri, fyrir kynferðislegt áreiti á þeim, en það átti að hafa átt sér stað á meðan þær voru börn.
Mér finnst ömurlegt að þurfa að hugsa til þess að svona lagað skuli vera innan ættarinnar. Og enn ömurlegra þegar ég hugsa til þess að móðurafi minn skuli vera kynferðisafbrotamaður. Þessi mál hafa sundrað upp ættinni. Margir innan ættarinnar gera ekki annað en að rífast endalaust um þetta á facebook. Sumir vilja halda því fram að þetta séu allt saman lygar og það sé bara verið að reyna að sverta mannorð manneskjunnar. Aðrir vilja halda því fram að þetta hafi allt gerst.
Persónulega trúi ég þeim ásökunum sem hafa verið lagðar á þessa menn. Ég er ekki að fara að draga frásögn móður minnar í efa. Þegar hún sagði okkur systrunum frá þessu, áttuðum við systir mín okkur á því að hegðun afa gagnvart okkur hafi ekki alltaf verið jafn siðsamleg, ef svo má að orði komast, og við töldum á þeim tíma.
Ég átti það til að sitja oft í kjöltunni hjá afa, sem og mörg börn gera og það er svosem ekkert athugavert við það. En þegar hann fór að þrýsta manni fast að sér, þegar maður þóttist ætla að standa upp og leika sér, og strjúka lærin á manni svo enginn sæi til, fóru einhverjar bjöllur að hringja í hausnum á manni. En ég fyrir minn part gerði mér aldrei almennilega grein fyrir þessu, þ.e. ekki fyrr en móðir mín talaði við okkur systurnar og við fórum aðeins að hugsa til baka og pæla í þessu.
Ég hef umgengist afa minn eftir að þetta mál kom upp. Ég fer enn í heimsókn til hans og borða hjá honum þegar hann býður mér í mat. En systir mín vill engin samskipti hafa við hann, og ég ásaka hana ekkert fyrir það. Móður minni hefur líka alltaf liðið hálf óþæginlega í kringum hann, en hún leifði honum þó að kynnast okkur krökkunum, og henni datt ekki í hug að vera að segja okkur þetta þegar við vorum yngri, og þar með skemma sambandið okkar við afa. En þegar þessi mál komu upp á yfirborðið í fjölskyldunni, taldi hún að það væri best að við myndum heyra þetta beint frá henni, frekar en að sjá einhverja umfjöllum um þetta á netinu og skilja ekki af hverju það væri verið að tala svona um afa okkar. Enda vorum við orðnar nógu gamlar til að heyra þessa frásögn og skilja hana og afleiðingarnar sem hún hafði í för með sér.
Móðurafi minn getur ekki hitt jafn marga innan fjölskyldunnar núna og hann var vanur, og þeir sem hitta hann gera það ekki nærrumþví jafn oft. En þetta er bara eitthvað sem hann verður að sætta sig við. Maður þarf að taka afleiðingum gjörða sinna, sama hversu leiðinlegt og ömurlegt það gæti verið. Mér myndi til dæmis aldrei detta það í hug að skilja dóttur mína eina eftir í hans umsjá. Ég einfaldlega get ekki treyst honum til þess að vera einn með hana. Eins ömurlegt og harkalegt það er að þurfa að koma svona fram við afa sinn, þá verðu það bara því miður að vera þannig, svo ég geti tryggt öryggi dóttur minnar.
Ég veit ekkert hvort hann hefur gert eitthvað af sér upp á síðkastið eða ekki, en þetta er áhætta sem ég er einfaldlega ekki fús til að taka. Hann verður bara að sætta sig við það, að þegar maður gerir svona hluti, missir maður gríðarlegt traust hjá þeim sem eru manni næstir.
Ég veit heldur ekki hvort að hann eigi eftir að lesa þessa færslu, og þá hvort hann vilji nokkurn tíman tala við mig aftur, þegar hann er búinn að sjá hvað mér finnst um þetta. En mér finnst bara eins og ég verði að segja frá þessu. Ég tel, að ef maður viti af svona afbrotamönnum, sé maður skyldugur til þess að segja frá, þó svo það sé ekki nema til þess að tryggja öryggi sinna nánustu.

Að lokum
vil ég engin helvítis skítköst af því sem ég er að skrifa í þessum pistli.
Þetta er einfaldlega bara mín skoðun á þessu máli og mér finnst ég hafa allan
rétt til þess að tjá mig um þetta mál.
Engin ummæli:
Skrifa ummæli