Aldrei virðist ég geta bara haldið mig á einum stað. Enda var Hella ekki beint besti staðurinn til að búa á, að mínu mati. Akureyri á allavega betur við mig.
Sæja er komin til dagmömmu og ég er komin með fasta vinnu hjá Hreint. Okkur líður bara mjög vel hérna fyrir norðan, en að sjálfsögðu er þetta bara tímabundið, eins og allir hinir staðirnir sem ég hef búið á. Planið er semsagt að fara suður til Reykjavíkur næsta haust og fara aftur í HÍ, en að þessu sinni mun það vera sálfræðin sem ég ætla að taka mér fyrir hendur, þjóðfræðin var ekki alveg minn tebolli.
En að einhverju allt öðru..
Sum ykkar hafið kannski tekið eftir því að ég heiti ekki það sama á facebookinu og ég gerði. Það er einfaldlega vegna þess að ég er að fara að breyta nafninu mínu. "Af hverju?" you may ask... nú, vegna þess að mig langar til þess. Ég á mjög erfitt með að sætta mig við það að heita Dagmar, af því að mér finnst það ekki flott, mér finnst það ekki fara mér, og ég vil ekki bera það nafn lengur.
Og það getur vel verið að einhverjum finnist það fara mér rosalega vel, eða vera rosalega flott, og að ég ætti alls ekki að vera að breyta því.
En það eru ykkar skoðanir, og þið megið endilega bara halda þeim fyrir ykkur. Mér einfaldlega gæti ekki verið meira sama hvað ykkur finnst um það að ég sé að breyta nanfinu mínu.
Ég er að fara að gera það, og ég myndi meta það mikils ef þið gætuð reynt eftir bestu getu að kalla mig mínu nýja nafni, í staðin fyrir það að koma með einhver skítköst í mig út af þessu.
Ég er ekki að reyna að búa til einhver leiðindi með þessu, bara svo að það sé alveg á hreinu, og ég er heldur ekki að vonast eftir því að með nýju nafni komi nýr persónuleiki.
Ekki halda að ég horfi á það þannig. Ég veit það alveg að annað umhverfi, annað útlit, annar vinnustaðir, aðrir vinir, breyta því ekki hver maður er. Svo af hverju ætti nafnabreyting að gera það?
Ég er ennþá sama manneskjan, bara með annað nafn...
Lillý Ásrún.
miðvikudagur, 30. september 2015
þriðjudagur, 7. apríl 2015
Páskar og afmæli 2015
Páskarnir eru búnir að vera ótrúlega góðir hjá okkur í ár. Ég var að vinna á föstudaginn langa og páskadag, en var þó bara í morgunmatnum svo ég var bara að vinna til hádegis.
Sæja Sjöfn þurfti því miður að fá gubbupest á föstudagskvöldið. Sem betur fer kom síðasta gusan um tólf leitið og hún var farin að sofa fyrir eitt. Ég var ennþá svo skíthrædd um að hún myndi gubba á meðan hún væri sofandi að ég vakti yfir henni til að verða þrjú. En þá vakti ég líka Tomma og hann vakti í sirka hálftíma í viðbót yfir henni. Morguninn eftir var hún svo orðin hress aftur, svo við skelltum okkur í afmælisveislu í Hveragerði. Um kvöldið skelltum við Tommi okkur svo aðeins niðrá Stracta og fengum okkur bjór og höfðum það smá kósí. Á meðan var amman heima að æfa sig fyrir næstkomandi laugardag, en þá erum við Tommi að fara á Wacken Metal Battle í Hörpu og verðum örugglega í bænum yfir nótt.
Páskadagurinn var svo eins rólegur og þeir gerast. Eftir að ég kom heim úr vinnunni byrjaði ég á því að leggja mig, svo var páskamaturinn um tvö leitið og eftir það var bara legið uppí sófa og hámað í sig súkkulaði, svona eiga páskarnir líka að vera. Og, ég fékk tvo málshætti í egginu mínu ^^

Dagurinn í gær var svo alveg frábær. Við fórum til Reykjavíkur, kíktum í smá heimsókn til palla afa og svo til Magnýar og Steinunnar. Magný kom svo með okkur í Kolaportið, en þar keypti ég mér ný gleraugu og svo keypti Tommi fyrir mig seinni tvær bækurnar í Eragon seríunni, en ég átti hinar fyrir. Bækurnar kostuðu saman 2500 kr. og þær eru enn í plastinu! Á meðan við Magný og Sæja settumst niður til að fá okkur smá köku, en Sæja fékk smá rjóma og var gríðarlega ánægð með það, náði Tommi að kaupa sér fimm DVD-myndir og einn bol :O Ég þakka bara fyrir að það sé mest allt ódýrt í portinu c;
Eftir Kolaportið skelltum við okkur síðan á Metro og svo fór Sæja Sjöfn í fermingarveislu með ömmu sinni en við Tommi skelltum okkur í Hagkaup þar sem ég fékk mér æðislegt burstasett og kíktum svo í bíó.
Við ákváðum að skella okkur á Kingsman: The Secret Service, og á miðanum sem ég fékk stóð SALUR 5. Ég leit bara rétt yfir þetta og setti þá svo í veskið. Við förum svo inn í sal fimm og finnum okkur sæti og smjöttum á poppinu. Svo byrjar myndin..... "Sean Penn" stendur á skjánum og ég hugsa með mér "Bíddu.. var hann í þessari mynd?" o.O Svo koma alls konar stríðsmyndir á tjaldið og svo "Gunman" :O Við drífum okkur út úr salnum og ég ríf upp miðana, en á þeim stendur auðvitað "SALUR 5...Gunman" Það er víst svo rosalega mikið að gera í Smárabíó að það þarf ekkert að vera að afgreiðslufólk gefi manni miða á rétta mynd x) Sem betur fer var Kingsman í salnum við hliðiná og myndin rétt að byrja þegar við komum inn. Myndin sjálf var algjör snilld, og ég mæli eindregið með henni. En djöfull var ég orðin pirruð á stelpunni sem sat fyrir aftan mig og sparkaði og sparkaði í sætið mitt. Þegar ég sneri mér svo loksins við, pikkaði í hana og bað hana um að hætta að sparka í sætið segir hún "Ég er ekkert að sparka!" Ætli hún hafi ekki verið svona 12-14 ára, og alveg að farast úr gelgju -.-"
Sæja Sjöfn var svo orðin frekar lasin þegar við vorum á leiðinni heim þannig við komum við í apóteki og fengum fyrir hana stíla. Hún er ennþá svoldið lasin, með mikið nefrennsli, hóstar og hnerrar og er líka með mjög mikið kvef í augunum, auk þess sem hún er alltaf þreytt. En við fengum tíma hjá lækni á morgun svo ég vona bara að það fari allt saman vel.
þriðjudagur, 17. mars 2015
Sex mánaða skvísa og eins árs trúlofun
Við Tommi áttum eins árs trúlofunarafmæli á sunnudaginn! Ég var að vinna frá sjö til tvö, en svo höfðum við það bara kósí restina af deginum. Alltaf jafn ótrúlegt að hugsa til þess hvað tímanum líður!
Sæja Sjöfn varð svo sex mánaða núna 12. mars, og það sem hún hefur blómstrað! Hún er farin að borða hafragraut á morgnanna og vatnsglas, og fær smá lýsi með því (sem henni finnst líka svona gríðarlega gott), fær síðan smá jógúrt í hádeginu og fær aðeins að leggjast á brjóstið áður en hún fer út að lúlla. Svo er hún alltaf jafn spennt þegar hún fær stappaða kartöflu með smjöri í kvöldmatinn! Hún vaknar ennþá á nóttunni til að fá smá að súpa, en ég er byrjuð að reyna að gefa henni bara smá vatnssopa og svæfa hana svo aftur. Finnst alveg vera kominn tími til að hún sofi bara á nóttunni, held við þurfum öll á því að halda.
Vinnan á Stracta Hóteli er alveg frábær. Á laugardaginn var ég að vinna í tíu tíma, frá sjö um morguninn til fimm, og mér fannst það bara allt í lagi. Þegar ég kom loksins heim fannst mér ekkert eins og ég hafði verið að vinna í heila tíu tíma. Tommi og Sæja þurftu reyndar að koma um þrjú leitið svo ég gæti gefið henni aðeins að drekka. Ekki þó af því að hún var búin að vera að kvarta, heldur var það ég sem þurfti aðeins að tappa af, svona áður en brjóstin á mér myndu springa af mjólkurframleiðslu! Hingað til hef ég bara verið að vinna eitt til tvö kvöld í viku og svo á morgnanna um helgar, en ég vona að ég geti fengið aðeins fleiri vaktir í apríl. Bæði svo að Sæja geti vanist því að ég er ekki alltaf heima, og svo er þetta líka ágætlega vel borguð og skemmtileg vinna. Og við þurfum alveg á peningunum að halda, sérstaklega ef við ætlum einhverntíman að geta fengið okkar eigin íbúð og jafnvel gift okkur einvhern tíman, það eru náttúrulega mjög miklir peningar sem fara í svona stórt partý.
Ég ákvað um daginn að reikna út BMI stuðulinn minn, bara svona til að tékka á því hvort ég sé ekki alveg líkamlega "heilbrigð". En nei nei, samkvæmt þessum blessaða stuðli er ég í hópi offitusjúklinga.

Ok, ég veit alveg að ég er með helling af óþarfa fitu og einhverja auka húð á bumbunni, svo er ég líka að taka til í mataræðinu og svona svo ég losni nú við þessa auka fitu, en come on, offitusjúklingur! Þetta sýnir bara hvað þessi helvítis stuðull er glataður!
Ég er annars farin að hallast að því að ég þurfi að fara að panta mér tíma hjá lækni og fá jafnvel önnur lyf en þessi sem ég er að taka. Þessi þunglyndis-/kvíðalyf sem ég er á gera voðalega lítið fyrir mig, annað en það að ég fæ bullandi niðurgang,, ekki gaman!
Ég er búin að vera að fylgjast mjög mikið með pólitík upp á síðkastið, sérstaklega hvað varðar múslima- og evrópusambands mál. Og ég verð bara að segja eins og er, að mér er nákvæmlega sama hvort að múslimar byggji sér mosku hérlendis eða ekki, en ég skil reyndar ekki alveg af hverju Reykjavíkurborg ætti að GEFA þeim sérstakt svæði til þess. Svo hef ég engann sérstakan áhuga á því að ganga í Evrópusambandið, en það er lágkúrulegt að draga umsóknina til baka án þess að þetta fari í þjóðaratkvæðisgreiðslu. Þjóðin á að fá að ráða svona málum, ekki einhverjir nokkrir kallar inná Alþingi. Þetta á að heita lýðræði, þar sem lýðurinn ræður, ekki einhverjir 2-3 dúddar. Og með það sagt hefði þetta mál átt að fara í þjóðaratkvæðisgreiðslu, sama þó ég sé sátt með útkomuna eða ekki.

Jæja, núna var skvísan að vakna eftir útilúrinn sinn. Þá er kominn tími fyrir smá mjólkurglas og leiktíma. Bless í bili.
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)