fimmtudagur, 13. nóvember 2014

Ekki er allt sem sýnist

Þegar ég var lítil fór ég oft í heimsókn til móðurafa míns, og gisti hjá honum oftar en einu sinni. Hann hefur alltaf verið mjög góður og elskulegur við okkur krakkana og viljað allt fyrir okkur gera. En hann er þó ekki allur þar sem hann er séður.
Fyrir svolitlu síðan vorum við fjölskyldan að horfa á sjónvarpsþáttinn Málið á Skjá Einum. Þátturinn þetta tiltekna kvöld fjallaði um barnaníðinga. Nokkrum dögum síðar ákvað móðir mín að tala svoldið alvarlega við mig og systur mína. Við fórum inn í herbergið mitt þar sem mamma og stjúp faðir minn sögðu okkur lítt skemmtilega sögu.
Þegar móðir mín var einhvers staðar á aldrinum tíu til ellefu ára var brotið á henni kynferðislega. Ekki nóg með það, heldur var afbrotamaðurinn faðir hennar.  Ég veit ekki hversu oft það var, eða í hversu langan tíma það stóð yfir, en þó það hefði bara verið einu sinni, er það alveg nógu slæmt. Og móðir mín var víst ekki sú eina sem hann braut á. Hann hafði líka brotið kynferðislega á systur móður minnar, og allavega tveimur af sínum eigin systrum.
Annað áreitamál kom upp innan ættarinnar um svipað leiti og móðir mín sagði frá ölllu saman. Fyrverandi maður einnar frænku minnar var kærður af, að ég held, sex eða sjö konum á Þingeyri, fyrir kynferðislegt áreiti á þeim, en það átti að hafa átt sér stað á meðan þær voru börn.
Mér finnst ömurlegt að þurfa að hugsa til þess að svona lagað skuli vera innan ættarinnar. Og enn ömurlegra þegar ég hugsa til þess að móðurafi minn skuli vera kynferðisafbrotamaður. Þessi mál hafa sundrað upp ættinni. Margir innan ættarinnar gera ekki annað en að rífast endalaust um þetta á facebook. Sumir vilja halda því fram að þetta séu allt saman lygar og það sé bara verið að reyna að sverta mannorð manneskjunnar. Aðrir vilja halda því fram að þetta hafi allt gerst.
Persónulega trúi ég þeim ásökunum sem hafa verið lagðar á þessa menn. Ég er ekki að fara að draga frásögn móður minnar í efa. Þegar hún sagði okkur systrunum frá þessu, áttuðum við systir mín okkur á því að hegðun afa gagnvart okkur hafi ekki alltaf verið jafn siðsamleg, ef svo má að orði komast, og við töldum á þeim tíma.
Ég átti það til að sitja oft í kjöltunni hjá afa, sem og mörg börn gera og það er svosem ekkert athugavert við það. En þegar hann fór að þrýsta manni fast að sér, þegar maður þóttist ætla að standa upp og leika sér, og strjúka lærin á manni svo enginn sæi til, fóru einhverjar bjöllur að hringja í hausnum á manni. En ég fyrir minn part gerði mér aldrei almennilega grein fyrir þessu, þ.e. ekki fyrr en móðir mín talaði við okkur systurnar og við fórum aðeins að hugsa til baka og pæla í þessu.
Ég hef umgengist afa minn eftir að þetta mál kom upp. Ég fer enn í heimsókn til hans og borða hjá honum þegar hann býður mér í mat. En systir mín vill engin samskipti hafa við hann, og ég ásaka hana ekkert fyrir það. Móður minni hefur líka alltaf liðið hálf óþæginlega í kringum hann, en hún leifði honum þó að kynnast okkur krökkunum, og henni datt ekki í hug að vera að segja okkur þetta þegar við vorum yngri, og þar með skemma sambandið okkar við afa. En þegar þessi mál komu upp á yfirborðið í fjölskyldunni, taldi hún að það væri best að við myndum heyra þetta beint frá henni, frekar en að sjá einhverja umfjöllum um þetta á netinu og skilja ekki af hverju það væri verið að tala svona um afa okkar. Enda vorum við orðnar nógu gamlar til að heyra þessa frásögn og skilja hana og afleiðingarnar sem hún hafði í för með sér.
Móðurafi minn getur ekki hitt jafn marga innan fjölskyldunnar núna og hann var vanur, og þeir sem hitta hann gera það ekki nærrumþví jafn oft. En þetta er bara eitthvað sem hann verður að sætta sig við. Maður þarf að taka afleiðingum gjörða sinna, sama hversu leiðinlegt og ömurlegt það gæti verið. Mér myndi til dæmis aldrei detta það í hug að skilja dóttur mína eina eftir í hans umsjá. Ég einfaldlega get ekki treyst honum til þess að vera einn með hana. Eins ömurlegt og harkalegt það er að þurfa að koma svona fram við afa sinn, þá verðu það bara því miður að vera þannig, svo ég geti tryggt öryggi dóttur minnar.
Ég veit ekkert hvort hann hefur gert eitthvað af sér upp á síðkastið eða ekki, en þetta er áhætta sem ég er einfaldlega ekki fús til að taka. Hann verður bara að sætta sig við það, að þegar maður gerir svona hluti, missir maður gríðarlegt traust hjá þeim sem eru manni næstir.
Ég veit heldur ekki hvort að hann eigi eftir að lesa þessa færslu, og þá hvort hann vilji nokkurn tíman tala við mig aftur, þegar hann er búinn að sjá hvað mér finnst um þetta. En mér finnst bara eins og ég verði að segja frá þessu. Ég tel, að ef maður viti af svona afbrotamönnum, sé maður skyldugur til þess að segja frá, þó svo það sé ekki nema til þess að tryggja öryggi sinna nánustu.


Að lokum vil ég engin helvítis skítköst af því sem ég er að skrifa í þessum pistli. Þetta er einfaldlega bara mín skoðun á þessu máli og mér finnst ég hafa allan rétt til þess að tjá mig um þetta mál.

sunnudagur, 9. nóvember 2014

Eins árs samband og flutningar

Fyrsta nóvember áttum við Tommi eins árs sambandsafmæli. Til að halda upp á það fórum við út að borða á Hótel Selfoss, en á meðan var Særún Sjöfn í pössun hjá ömmu og afa á Hellu. Á hótelinu fengum við okkur humarsúpu í forrétt, og svo nautasteik í aðalrétt. Humarsúpan var svo þung í magann að ég átti erfitt með að klára steikina. Sérstaklega þar sem hún kom svo fljótt á eftir súpunni, við höfðum rétt svo tíma til að stökkva út að reykja í millitíðinni, og þegar við vorum komin inn aftur voru steikurnar komnar á borðið. Við vorum svo búin á því að við slepptum eftirrétt en fórum frekar í Hornið og keyptum smá laugardagsnammi, sem við reyndar borðuðum ekki fyrr en daginn eftir, en það er annað mál.
Á meðan við vorum að borða steikina kom fjölskylda með lítið barn með sér, og í hvert skipti sem það byrjaði eitthvað aðeins að kvarta, leit ég á gólfið við hliðina á borðinu til að gá hvort að þetta hefði verið Særún að kvarta úr bílstólnum. Ég er orðin svo vön að hafa hana hjá mér öllum stundum, að það var svo skrítið að geta farið út að borða án þess að hafa hana með. 
Á miðvikudaginn komum við Særún Sjöfn norður á Akureyri, með flugi. Ég var orðin skíthrædd um að hún myndi gráta allan tímann á meðan við værum í loftinu, en þótt ótrúlegt sé, þá svaf hún bara. Við mættum svolítið snemma út á flugvöll. Særún svaf til svona korter í tvö, en þá vakti ég hana og gaf henni að drekka. Hún fékk síðan smá quality time með pabba sínum áður en við fórum út í vél. Þegar út í vél var komið byrjaði hún aðeins að láta heyra í sér, en um leið og vélin laggði af stað út á flugbrautina sofnaði litla skvísan og svaf af sér alla ókyrrðina í loftinu. Rétt áður en vélin fór að lækka flugið vaknaði hún í svona fimm mínútur, spjallaði aðeins við mömmu sína, en sofnaði svo strax aftur þegar vélin fór að lækka flugið. Svo þegar flugvélin var búin að stoppa fyrir utan flugvöllin, þá var mál að vakna aftur. Alma kom og sótti okkur út á flugvöll, og þegar við komum heim til ömmunnar var sko löngu kominn tími til að fá smá að drekka, og drakk hún í allavega hálftíma.
Stuttu seinna kom amman heim úr klippingu og ég gat farið að byrja að pakka. Ég notaði miðvikudagskvöldið, mest allan fimmtudaginn og föstudaginn til að pakka, og náði svo að klára það allra síðasta í gær. Gríðarlega mikil vinna, en núna er þetta allt komið og ég á bara eftir að þrífa niðri. Þvílíkur léttir sem það er að vera búin að þessu öllu! Í fyrramálið koma svo menn frá Landflutningum og hjálpa mér að setja dótið upp á bretti og út í bíl. Þeir fara svo með það suður og Tommi og afi hans fara svo og ná í það allt saman í bæinn. Við Særún eigum svo pantað flug klukkan átta annað kvöld. Og þá getum við loksins tekið því rólega þegar við komum heim annað kvöld. Allt dótið komið suður og þurfum þá bara að finna okkur litla íbúð á Hellu.
 Ég er eiginlega alveg hætt við þessa draumóra um að fara aftur í háskólann og læra fornleifafræði. Það er því miður enga vinnu hægt að fá í þeim geira hérlendis, og svo er ekki hægt að taka neitt af þessu í fjarnámi þannig að ég þarf að vera stanslaust í skóla í sex ár og vera á námslánum allan þann tíma, og það kemur einfaldlega bara ekki til greina.
Þess vegna hef ég ákveðið að fara frekar í sálfræði. Það er nám sem ég get tekið í fjarnámi og get þá líka verið í vinnu. Þá þarf ég ekki að taka nein andskotans námslán og standa í einhverjum helvítis skuldum og afborgunum við LÍN það sem eftir er af lífinu. Ég held síðan að þegar ég er búin með námið vilji ég vinna með börnum, sama hvort það sé innan leikskólakerfisins eða barnaverndarstofnun.. svo lengi sem vinnan mín snúist um að hjálpa börnum sem eiga í einhvers konar vanda, sama hvort sá vandi sé aðeins innra með barninu eða yfirgnæfandi á heimili þess.
Það verður svo gott að komast heim á Hellu og geta tekið því rólega á næstunni. Þessir flutningar eru alveg að gera út af við mig. Sem betur fer er Særún svo vær að hún getur verið mest allan tímann bara hjá ömmu sinni og haft það kósí á meðan ég geng frá öllu.